Hafnfirðingar, skrifum undir og mótmælum háhýsum við Flensborgarhöfn
Við undirrituð mótmælum byggingu 5 hæða háhýsa á hafnarkanti Flensborgarhafnar sem munu byrgja útsýni og verða eitt helsta kennileiti bæjarins. Húsin geta orðið allt að 22 metra há. Stærðin er langt umfram húsnæðisþörf Hafrannsóknarstofnunar sem áætlað er að flytji í hluta húsnæðisins.
Við krefjumst þess að gengið verði út frá fyrri skipulagslýsingu frá 2016 þar sem lögð er áhersla á lágreistar byggingar sem falla vel að aðliggjandi byggð.
Það er ljóst að byggingarnar munu hafa fordæmisgildi. Dómnefnd skilar áliti um framtíðarskipulag Flensborgarhafnar í maí. Við viljum ekki annan Norðurbakka neðan við Suðurbæinn.
Nánari upplýsingar um framkvæmdirnar, myndir, skjöl og greinar er að finna efst á Facebook síðunni: www.facebook.com/ekkihahysi
.jpg)
Guðmundur I. Markússon Contact the author of the petition
Announcement from the administrator of this websiteWe have closed this petition and we have removed signatories' personal information.European Union's General Data Protection Regulation (GDPR) requires a legitimate reason for storing personal information and that the information be stored for the shortest time possible. |