Áskorun til Vigdísar Hauksdóttur
Contact the author of the petition
Það er útilokað fyrir þjóðina að ná sér aftur á strik nema hún standi sameinuð og að lausnirnar séu valdar eftir því hversu góðar þær séu en ekki eftir flokkspólítískum línum. Það er því ábyrgðarhluti hjá forustumönnum þjóðarinnar að bjóða upp á sameiginlega þátttöku hinna ýmsu og óliku afla, fá hæft fólk til starfa, þvert á flokkslínur, taka tillit til ráða þeirra og síðast en ekki síst, að vinna sameinuð en ekki að stuðla að sundrungu.
Fólk eins og Vigdís H. geta aldrei annað, með æpandi vanhæfni sinni, öfgafullum skoðunum, hroka, fáránlegum staðhæfingum og hótunum, en stuðlað að sundrungu og látið fólk missa tiltrú á hæfni ríkisstjórnarinnar til að takast á við það erfiða verkefni sem bíður hennar. Meiri ólga í samfélaginu seinkar einfaldlega efnahagslegum bata hér og því höfum við ekki efni á að hafa fólk eins og Vigdísi í vinnu hjá okkur.
Vanhæfni hennar er alger og vinnubrögð fyrir neðan allar hellur; við viljum ekki aftur andverðleikasamfélag óttans og valdmisbeitingar. Það á að vera liðin tíð!
það er ekkert annað í stöðunni en að hún segi sig frá öllum áhrifastöðum sem hún gegnir fyrir þjóðina og verði þannig fyrst margra sem það ættu að gera.
Það er með mestu ólíkindum að hún(og reyndar margir aðrir) hafi komist í svona áhrifastöðu og svona mistök mega hreinlega ekki eiga sér stað aftur. Hinn hæfasti á að vera í forsvari fyrir þær nefndir og ráð sem eiga að koma með tillögurnar sem leiða okkur út úr kreppunni. Ríkisstjórnin þarf að sjá til þess. Annars næst aldrei sátt í samfélaginu og við verðum enn á sama stað eftir 4 ár.
Eða hvað? Er þetta lýðræðið í reynd? Er stór hluti íslenskra kjósenda einfaldlega fábjánar?
This comment has been removed by the person who wrote it.
Sorglegt
Völd eru vandmeðfarin - og hroki líka
Re:
Ss þú ert bara á móti vinstrafólki, hvert svo sem það er, og ætlar að leyfa þessari konu að misnota stöðu sína til þess að ritskoða fjölmiðil vegna þessa? Gerirðu þér grein fyrir því hversu heimskt það er?
Re: ÁFRAM VIGDÍS
Vegna þess að þú ert á móti einum flokki verður þú að styðja allan skít frá öðrum flokki? Ertu jafn brenglaður og Vigdís?
Hlutleysi er ekki til, nema í tilraunaglösum.
Mitt huglæga mat hinsvegar er að það sem fólk í valdstöðum kallar hlutleysi er það sem við hin myndum kalla undirlægjuhátt gagnvart ráðandi öflum og stéttum. Gagnrýnislaus fréttamennska er gagnslaus fréttamennska.
Annað: Vigdís hefur sýnt þroskaleysi með orðum sínum og gjörðum, og á því ekki heima í nefnd þar sem "allt er undir" (ég leyfi mér að vitna í Hæstvirtan). Andóf gegn ritskoðun og flokkapólítísku krukki í okkar helstu menningarstofnun er ekki einkamál vinstrimennsku. Stöndum saman gegn hugsunar-gestapó.
Re:
Þetta vildi fólkið sem kaus og mikið af því fólki er farið að skammast sín fyrir hvað það kaus vitlaust!
Re:
Við erum öfgahópurinn sem kennir sig við heilbrigða lýðræðislega umræðu án flokkapots vænisjúkra "miðjumanna". Miðjumanna sem geta ekki hætt að úthrópa gagnrýnisraddir sem vonda vinstrið.
Re:
Eru það ofsóknir að telja kjörinn valdamikinn einstakling óhæfan í starfi?
| This discussion has been closed. |